Fara í efni

Skilaðu kílómetrastöðunni sjálfkrafa

Ratar sendir KM stöðuna sjálfkrafa í hverjum mánuði. Engin handvirk skráning.

Tvær leiðir til sjálfvirkra kílómetraskila

Valkostur 1

GPS OBD II Pro

1.200 kr./mán. + 25.000 kr. fyrir tækið

Tengist í OBD-II tengið, les kílómetrastöðuna úr tölvu bílsins og sendir hana sjálfkrafa. Rauntíma GPS eftirlit fylgir með.

Studd ökutæki: rafmagnsbílar · venjuleg ökutæki

Sjá tækið
Nýtt

Valkostur 2

OEM Smartcar tenging

Frá 800 kr./mán. Enginn búnaður.

Tengist í gegnum app bílframleiðandans. Kílómetrastaðan er send sjálfkrafa mánaðarlega.

Sjá nánar um OEM tengingu

Frá 1. janúar 2026 þurfa öll skráningarskyld ökutæki að skila kílómetrastöðu, að minnsta kosti einu sinni á ári. Grunngjaldið fyrir bifreiðar undir 3,5 tonnum er 6,95 kr. á kílómetra. Hægt er einnig að skila handvirkt á island.is.

Spurningar um kílómetragjald

Hvað er kílómetragjald?

Kílómetragjald er greitt fyrir hvern ekinn kílómetra. Frá 1. janúar 2026 gildir það um öll skráningarskyld og skoðunarskyld ökutæki, óháð orkugjafa. Fyrir bifreiðar undir 3,5 tonnum er grunngjaldið 6,95 kr. á kílómetra. Skatturinn innheimtir gjaldið út frá kílómetrastöðu sem skilað er til Samgöngustofu.

Hverjir þurfa að skila kílómetrastöðu?

Allir eigendur skráningarskyldra og skoðunarskyldra ökutækja, bæði einstaklingar og fyrirtæki. Skila þarf stöðunni að minnsta kosti einu sinni á ári og eigandinn ber ábyrgð á að hún sé rétt.

Hvernig get ég skilað kílómetrastöðu?

Handvirkt á island.is, eða sjálfkrafa með Ratar. Ratar les stöðuna úr ökutækinu og sendir hana til Samgöngustofu í hverjum mánuði.

Hvernig virka sjálfvirk km skil hjá Ratar?

Tvær leiðir. GPS OBD II Pro tengist í OBD-II tengið og les kílómetrastöðuna úr tölvu bílsins. OEM Smartcar tenging þarf engan búnað og les stöðuna í gegnum app bílframleiðandans. Í báðum tilfellum sendir Ratar stöðuna sjálfkrafa mánaðarlega.

Hvað kosta sjálfvirk kílómetraskil?

OEM Smartcar tenging kostar frá 800 kr. á mánuði og krefst engins búnaðar. GPS OBD II Pro kostar 1.200 kr. á mánuði auk 25.000 kr. fyrir tækið. Öll verð eru með 24% VSK og hægt er að semja um verð eftir stærð flota.

Viltu sjá hvernig þetta virkar?