GPS Flotastýringá Íslandi
Ratar er GPS flotastýringarkerfi hannað sérstaklega fyrir íslensk fyrirtæki. Við hjálpum þér að fylgjast með öllum ökutækjum flotans í rauntíma, sjá aksturssögu og bæta skilvirkni rekstursins.
Hvað er flotastýring?
Flotastýring,einnig þekkt sem flotastjórnun, gerir fyrirtækjum kleift að fylgjast með ökutækjum sínum í rauntíma með GPS rakningu. Kerfi eins og Ratar safnar gögnum úr ökutækjum og sýnir þau á auðlesanlegu korti, hvar ökutækið er, hversu hratt því er ekið og hvaða leið það hefur farið.
Flotastýringarkerfi eru notuð af fyrirtækjum í flestum geirum eins og þjónustufyrirtækjum, byggingarfyrirtækjum, dreifingarfyrirtækjum, flutningarfyrirtækjum og öllum öðrum sem nota fleiri en eitt ökutæki.
Af hverju flotastýring?
Sparðu tíma og peninga
Flotastýring dregur úr eldsneytiskostnaði, styttir ferðatíma og auðveldar áætlanagerð. Fyrirtæki sem nota GPS flotastýringu geta sparað rekstrarkostnaði ökutækja.
Sjálfvirk kílómetraskil
Ratar gerir þér kleift að skila kílómetrum sjálfvirkt til Samgöngustofu. Engin handvirk skráning - kerfið sér um allt og dregur úr líkum á villum.
Rauntíma GPS rakning
Sjáðu alltaf hvar allir bílar flotans eru staðsettir á korti í rauntíma. u næsta lausa ökutæki og svaraðu viðskiptavinum á skemmri tíma.
Aksturssaga og skýrslur
Fáðu nákvæmar skýrslur um aksturssögu hvers ökutækis - hvar það var, hvenær og hversu hratt. Gagnlegt fyrir t.d. viðskiptavinarsönnun og viðhaldsskráningar.
Tilkynningar og viðvaranir
Stilltu tilkynningar þegar ökutæki fer á skilgreint svæði (e. geofence), fer yfir hámarkshraða eða þegar ökutæki er á ferð utan vinnutíma. Vertu alltaf upplýst/ur.
Viðhaldsáminningar
Flotastýringarkerfi Ratar getur minnt þig á olíuskipti t.d. tilkynning á 15.000 km fresti.
Hvernig virkar flotastýring hjá Ratar?
- 1
GPS tæki sett upp í ökutæki
Lítið GPS tæki er tengt við OBD-II tengi bílsins eða tengt við rafgeymi. Uppsetning tekur 15–30 mínútur á ökutæki. Ratar geturð aðstoðað við ferlið.
- 2
Gögn send á öruggan netþjón
GPS tækið sendir staðsetningargögn og ökugögn á öruggan netþjón Ratar í rauntíma yfir farsímanet. Gögn eru geymd öruggt og í samræmi við GDPR.
- 3
Yfirsýn í vafra eða í síma
Þú skráir þig inn á vefinn og sérð allt flotann á korti - hvar hvert ökutæki er, aksturssögu og skýrslur. Aðgengilegt hvar sem er.
Flotastýring fyrir öll fyrirtæki
Hvort sem þú ert með eitt ökutæki eða hundrað, þá er Ratar flotastýringarkerfi hannað til að vaxa með þínu fyrirtæki. Við þjónustum fyrirtæki í öllum geirum á Íslandi.
Algengar spurningar um flotastýringu
Hvað er flotastýring?
Flotastýring (einnig þekkt sem flotastjórnun) er kerfi sem gerir fyrirtækjum kleift að fylgjast með staðsetningu og notkun ökutækja og tækja í rauntíma með GPS tækni. Með flotastýringarkerfi getur stjórnandi séð hvar allir bílar flotans eru, hversu hratt þeir aka og hverja leið þeir fara.
Hversu margar bifreiðar þarf ég til að það sé þess virði að nota flotastýringu?
Flotastýring er gagnleg jafnvel fyrir fyrirtæki með eina eða tvær bifreiðar. Með Ratar er hægt að hefja notkun með einu ökutæki og bæta við fleiri þegar þörf krefur. Kerfi Ratar er hannað til að vera hagkvæmt fyrir fyrirtæki af öllum stærðum.
Hvernig er GPS flotastýring tengd í bílinn?
GPS tækið er tengt við OBD-II tengi bílsins eða tengt við rafgeymi. Uppsetning tekur venjulega 15–30 mínútur.
Hvernig hjálpar flotastýring til að spara peninga?
Flotastýring dregur úr eldsneytiskostnaði með því að greina óhagkvæmar akstursvenjur, styttir biðtíma með því að senda næsta laust ökutæki, dregur úr viðhaldskostnaði með tímasettu viðhaldsáminningum og hjálpar til við sjálfvirk kílómetraskil til Samgöngustofu.
Er Ratar flotastýring í samræmi við íslenskar persónuverndarreglur?
Já. Ratar er hannað í samræmi við GDPR og íslenskar persónuverndarreglur. Samkvæmt lögum þarf ökumaður að vera upplýstur um að staðsetningartæki sé í ökutækinu. Við aðstoðum við innleiðingu á réttum vinnureglum.
Byrjaðu á flotastýringu í dag
Hafðu samband við okkur og fáðu tilboð í GPS flotastýringu fyrir þitt fyrirtæki. Við hjálpum þér í gegnum alla uppsetninguna.
Eða skoðaðu forsíðuna okkar til að fá frekari upplýsingar um þjónustuna.