Spurðu flotann þinní ChatGPT og Claude
Með nýrri uppfærslu geturðu tengt Ratar við gervigreind í gegnum MCP. Spurðu hvar bílarnir eru, hvað var ekið og hvernig flotinn er notaður, á venjulegu máli.
Dæmi um samtal
ChatGPT eða ClaudeHvar er næsti lausi bíll við Kópavog?
Næsti lausi bíll er sendibíllinn við Smáralind. Hann er kyrrstæður og um stuttan akstur frá Kópavogi.
Hvaða ökutæki óku mest í síðustu viku?
Mest var ekið á Hiluxinum, um 840 km. Transporterinn kom þar á eftir með 610 km.
Dæmi um hvernig samtalið lítur út. Svörin koma úr þínum Ratar gögnum.
Hvað er MCP tengingin?
MCP er opin tenging sem lætur gervigreind sækja gögn úr Ratar þegar þú spyrð. Í stað þess að smella í gegnum kort og skýrslur skrifarðu spurninguna í ChatGPT eða Claude og færð svarið úr flotanum þínum.
Hvað geturðu spurt um?
Staðsetning núna
Spurðu hvar bíll er, hvaða ökutæki eru næst viðskiptavini eða hverjir eru á ferðinni.
Ferðir og saga
Fáðu yfirlit yfir hvar ökutæki hefur verið, hvenær og hversu langt var ekið.
Notkun flotans
Berðu saman ökutæki, kílómetrastöðu og notkun án þess að opna skýrslu.
Á venjulegu máli
Engar skipanir og ekkert nýtt viðmót. Þú skrifar spurninguna eins og þú myndir senda samstarfsmanni.
Þinn aðgangur
Tengingin notar Ratar aðganginn þinn. Gervigreindin sér aðeins þau gögn sem þú hefur þegar heimild til.
ChatGPT og Claude
Notaðu gervigreindina sem þú ert þegar með. Ratar kemur inn sem tenging, ekki sem nýtt forrit.
Hvernig byrja ég að nota Ratar MCP?
Hafðu samband við Ratar til að fá upplýsingar um uppsetningu. Við sendum þér leiðbeiningarnar fyrir ChatGPT eða Claude.
Hafðu samband við Ratar
Uppsetningarleiðbeiningar færð þú hjá okkur. Sendu tölvupóst eða hringdu og við sendum þér upplýsingarnar fyrir þinn aðgang.
Tengdu samkvæmt leiðbeiningum
Þú setur Ratar upp í ChatGPT eða Claude með upplýsingunum sem þú færð frá okkur.
Spyrðu flotann
Skrifaðu spurninguna á íslensku. Svarið kemur úr gögnum Ratar, ekki úr handvirkri leit í skýrslum.