<!-- Ratar | GPS rakning, flotalausnir og sjálfvirk kílómetraskil -->

# Betri flotastýringmeð GPS staðsetningu

Sjáðu allan flotann á korti, fylgstu með akstri og fáðu tilkynningar um hraða, svæði og viðhald.

## Viðskiptavinir okkar

## Sjálfvirk kílómetraskil

Sjáðu hvernig þú getur sent kílómetrastöðu sjálfkrafa, án handvirkrar vinnu.

[Skoða sjálfvirk km skil](/sjalfvirk-km-skil)

## Tengdu ökutækið án búnaðar

Tengdu ökutækið beint í gegn um bílaframleiðandann og sjáðu staðsetningu og kílómetrastöðu án uppsetningar.

[Sjá nánar um OEM tengingu](/oem-smartcar)

## Spurðu út í flotann með gervigreind

Tengdu Ratar við gervigreind með MCP og fáðu svör um staðsetningu, ferðir og notkun á venjulegu máli.

[Skoða MCP tengingu](/gervigreind)

Tæki í bíla, vinnuvélar og önnur tæki. Hægt er að færa gögnin inn í kerfið sem þú notar nú þegar með samþættingu.

-   [GPS tæki fyrir bíla](/gps-taeki-fyrir-bila)
-   [GPS tæki fyrir vinnuvélar](/gps-taeki-fyrir-vinnuvelar)
-   [Sjálfvirk kílómetraskil](/sjalfvirk-km-skil)
-   [OEM tenging](/oem-smartcar)
-   [Gervigreind](/gervigreind)
-   [Samþættingar](/samthaettningar)

## Fáðu góða yfirsýn yfir flotann þinn

Ratar býður upp á ökurita sem getur gefið fyrirtækjum yfirlit og greiningar á m.a. staðsetningum bíla, hraðamælingum og vegalengdum ásamt því að fá áminningar um viðhald, sé þess óskað.

[Skoða demo af kerfinu (opnast í nýjum glugga)](https://demo.ratar.is/?token=RjBEAiAFkL6zpteZ5ATtDWDoEnLpVGLCr0ZGy3HtPBwgj2_asQIgY99Cg-H479uk66V660s-IYkQr5_ZMFz4lgImZN9EBHR7ImkiOjEyMzk3MjY4MzgxOTY1NjI5NjEsInUiOjIsImUiOiIyMDMwLTAyLTEyVDAwOjAwOjAwLjAwMCswMDowMCJ9)

## Eiginleikar Ratar kerfisins

Nokkrir af mörgum eiginleikum kerfisins

### Rauntíma staðsetning

Þú getur fylgst með öllum flotanum í rauntíma og séð hvar hvert einasta tæki er staðsett.

### Öll sagan

Hver einasta hreyfing er geymd og þú getur skoðað nákvæmlega hvar ökutækið hefur verið og hvenær.

### Tilkynningar

Fáðu tilkynningu í tölvupósti ef t.d. ökutækið fer á skilgreint svæði eða ef ökutækið fer yfir ákveðinn hraða.

### Skýrslur

Fjölbreyttar skýrslur gefa þér góða innsýn í hvernig verið er að nota flotann þinn.

## Verð sem hentar litlum og stórum flotum

-   Sjálfvirk kílómetraskilfrá 800 kr/mán
-   Rauntíma GPS eftirlitfrá 1.200 kr/mán

Öll verð eru með 24% VSK. Hægt er að semja um verð eftir stærð flota.

[Sjá verðlista](/pricing)[Fá tilboð](/#get-quote)

Ratar er íslenskt GPS flotastýringarkerfi fyrir fyrirtæki sem vilja betra yfirlit yfir ökutækin sín. Kerfið sýnir staðsetningu allra ökutækja flotans í rauntíma á korti, geymir aksturssögu og býður upp á tilkynningar, viðhaldsáminningar og sjálfvirk kílómetraskil til Samgöngustofu. Ratar er kerfi sem virkar fyrir bæði fyrirtæki með 1 ökutæki og upp í stóran flota. Verð er samið eftir stærð flota og við aðstoðum við innleiðingu. Kerfið er notað af þjónustufyrirtækjum, verktökum, dreifingaraðilum og bílaleigum. Uppsetning er einföld: lítið GPS tæki er tengt við ökutækið, eða tengst er beint við app bílframleiðandans með OEM Smartcar tengingu án nokkurs búnaðar.

Í Ratar kerfinu sérðu hvar hvert ökutæki er statt í rauntíma, hvar það hefur verið á hverri stundu og hversu hratt því var ekið. Aksturssagan sýnir leiðir, stopp og tímasetningar og hægt er að taka út skýrslur um vegalengdir og notkun. Einnig er hægt að stilla tilkynningar - til dæmis þegar ökutæki fer inn eða út af skilgreindu svæði (geofence), fer yfir hámarkshraða eða er á ferð utan vinnutíma. Með GPS OBD II Pro tæki les kerfið auk þess kílómetrastöðu og gögn úr tölvu bílsins, svo sem snúningshraða og hitastig kælivökva.

Já, áskriftargjaldið er greitt á meðan tækið er virkt, þar sem tækin senda gögn hvort sem bíllinn er á hreyfingu eða ekki. Ef fyrirsjáanlegt er að ökutæki verði ekki í notkun í lengri tíma er hægt að taka tækið úr sambandi samkvæmt gjaldskrá og virkja það aftur síðar. Hafðu samband við okkur ef aðstæður breytast - við finnum lausn sem hentar þínum rekstri.

Nei, það er ekki leyfilegt - vöktun með leynd er óheimil. Samkvæmt reglum Persónuverndar um rafræna vöktun (nr. 50/2023) þarf ökumaður að vita af því að staðsetningarbúnaður sé í ökutækinu. Fyrirtæki mega hins vegar nota GPS ökurita í eigin ökutækjum ef lögmætir hagsmunir liggja til grundvallar - til dæmis betra skipulag, aukið öryggi eða lækkun rekstrarkostnaðar - og starfsmenn eru upplýstir um vöktunina með skýrum hætti og góðum fyrirvara. Skriflegt samþykki ökumanns er ekki skilyrði. Við aðstoðum við innleiðingu á réttum vinnureglum hjá þínu fyrirtæki.

## Algengar spurningar

Allt sem þú þarft að vita um þjónustuna okkar.

Finnur þú ekki svarið? Bókaðu kynningu og við svörum öllum spurningum þínum.
